
Óvíst er hvað tekur við hjá handknattleiksmanninum Bjarka Má Elíssyni þegar samningur hans við ungverska stórliðið Veszprém rennur út í sumar. Þetta kemur fram í frétt handbolti.is. Bjarki Már ekki gengið frá samningi við nýtt félag og segir að staða hans fyrir næsta tímabil sé því enn óljós. Bjarki Már gekk til liðs við Veszprém árið 2022 eftir farsælan feril í Þýskalandi þar sem hann lék meðal annars með ThSV Eisenach, Füchse Berlin, Lemgo. Á tíma sínum hjá félaginu hefur Bjarki Már meðal annars orðið ungverskur meistari, bikarmeistari og leikið með liðinu í Meistaradeild Evrópu. Það sést á athugasemdum við færslu Veszprem á Facebook að Bjarki Már er gríðarlega vinsæll meðal stuðningsmanna liðsins sem margir klóra sér í hausnum yfir því að félagið sé að láta hann fara eftir tímabilið þegar liðið hefur leikið úrslitaleikina um ungverska titilinn gegn Pick Szeged.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.