Yfirgefur Álaborg eftir 13 tímabil – Erfið ákvörðun
Ritzau Scanpix via AFP

Buster Juul, einn reyndasti leikmaður Álaborgar yfirgefur félagið eftir yfirstandandi tímabil. Framundan eru þó stór verkefni áður en hann kveður félagið en félagið er í baráttu um danska meistaratitilinn en liðið getur tryggt sér danska meistaratitilinn í kvöld sigri liðið Skanderborg í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu.

Þá leikur liðið í úrslitahelgi Meistaradeildarinnar um næstu helgi í Köln.

Þetta verður í þriðja sinn sem Juul tekur þátt í úrslitahelgi Meistaradeildarinnar með Álaborg. Í bæði fyrri skiptin endaði liðið með silfurverðlaun eftir tap í úrslitaleikjum gegn Barcelona. Að þessu sinni mætast liðin strax í undanúrslitum og fær Álaborg þar tækifæri til að hefna fyrir fyrri vonbrigði.

Juul mun ganga til liðs við Bjerringbro-Silkeborg þegar tímabilinu lýkur. Buster Juul hefur leikið með Álaborg frá árinu 2013.

Juul segir ákvörðunina um að yfirgefa félagið ekki hafa verið auðvelda.

,,Þetta var erfitt. Það tók mig langan tíma að taka þessa ákvörðun þar sem ég átti í stöðugu samtali við stjórnendur félagsins. Við ræddum stöðuna, hvernig framtíðin gæti litið út og hvaða möguleikar væru í boði fyrir báða aðila,“ sagði Buster Juul í samtali við TV2 Nord.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top