Þrátt fyrir að úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu í Köln hafi ekki farið eins og Álaborg vonaðist eftir gefst stuðningsmönnum nú kostur á að eignast sérstaka minjagripi frá tímabilinu. Danska félagið hefur sett notaðar keppnistreyjur leikmanna sinna úr Final4 helgi Meistaradeildarinnar á uppboð. Þar geta áhugasamir boðið í treyjur sem voru notaðar á stærsta sviði evrópsks félagsliðahandbolta. Á uppboðinu eru bæði heimatreyjur, útitreyjur og markmannstreyjur frá öllum leikmönnum aðalliðsins. Allar treyjurnar eru jafnframt áritaðar af þeim leikmanni sem notaði þær á tímabilinu. Aalborg segir á heimasíðu sinni að um sé að ræða einstakt tækifæri fyrir stuðningsmenn og safnara til að eignast minjagripi frá tímabili þar sem félagið var á ný meðal sterkustu handboltaliða Evrópu. Uppboðið er þegar hafið og geta áhugasamir lagt inn tilboð fram til 18. júní klukkan 20:00 í gegnum opinbera uppboðssíðu félagsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.