Fram hefur hafið leit af eftirmanni Eiðs Rafns
Egill Bjarni Friðjónsson

Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Fram haft samband við hægri hornamanninn Gabríel Martinez Róbertsson og kannað þann möguleika að hann gangi til liðs við félagið fyrir komandi tímabil í Olís-deild karla.

Gabríel, sem er fæddur árið 1999, er uppalinn hjá ÍBV og hefur leikið allan sinn feril með Vestmannaeyingum. Hann lék sitt fyrsta tímabil með meistaraflokki félagsins tímabilið 2018/2019 og varð Íslandsmeistari með ÍBV tímabilið 2022/2023.

Á síðustu leiktíð kom Gabríel einungis við sögu í fjórum leikjum með ÍBV þar sem hann skoraði 10 mörk en hann hafði ákveðið að leika ekki með liðinu á síðustu leiktíð en kom liðinu til bjargar vegna meiðsla vandræða hjá félaginu á tímapunkti.

Leit Fram að hægri hornamanni kemur í kjölfar þess að Eiður Rafn Valsson var seldur til FH í gær þrátt fyrir að hafa nýlega skrifað undir nýjan langtímasamning.

FH HEFUR KEYPT EIÐ RAFN

Verði af félagaskiptum Gabríels til Fram myndi félagið fylla mikilvægt skarð í leikmannahópi sínum fyrir komandi keppnistímabil en Fram endaði í 7.sæti Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð eftir að hafa orðið Íslands- og bikarmeistari tímabilið áður.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top