Eiður Rafn Valsson hægri hornamaður Fram hefur verið keyptur af FH. Þetta tilkynnti Hafnarfjarðarliðið í nótt á samfélagsmiðlum sínum. FH hefur komist að samkomulagi við Fram um kaup á hægri hornamanninum Eiði Rafni Valssyni og hefur hann gert þriggja ára samning við félagið. Eiður Rafn, sem fæddur er árið 2005, hefur verið einn öflugasti hægri hornamaður landsins undanfarin ár en hann skoraði 63 mörk í Olísdeildinni á síðasta tímabili. Eiður Rafn, sem lék með öllum yngri landsliðum Íslands, varð bæði Íslands- og bikarmeistari með Fram árið 2025. Handkastið greindi frá því fyrir helgi að Eiður Rafn hafi farið á fund með stjórn Fram og óskað eftir því að yfirgefa félagið. Eiður framlengdi samningi sínum við Fram í apríl. Stuttu eftir fund Eiðs við Fram hafði FH samband við Fram og sýndu leikmanninum áhuga. Hefur málið vakið athygli innan handboltahreyfingarinnar og menn velt því fyrir sér hvort um tilviljun hafi verið að ræða eða ekki. ,,Við bjóðum Eið Rafn velkominn í FH. Við erum sannfærð um að hann smellpassi inn í okkar umhverfi og væntum við mikils af honum. Eiður er metnaðarfullur leikmaður sem kemur með hraða, baráttuvilja og gæði inn í FH-liðið. Við hlökkum til að sjá hann blómstra í FH-treyjunni næstu árin” sagði Ágúst Bjarni Garðarsson formaður handknattleiksdeildar FH við undirskriftina.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.