Þýska Bundesligufélagið Bergischer HC hefur samið við sænska leikmanninn Tim Hilding sem kemur til félagsins frá HK Malmö. Hilding skrifaði undir tveggja ára samning og verður hluti af liði sem leikur í Evrópudeildinni í fyrsta sinn í sögu Bergischer á komandi tímabili. Bergischer HC tryggði sér sæti í Evrópudeildinni á síðustu leiktíð eftir tap gegn Fuchse Berlín í úrslitaleik þýska bikarsins. Bergischer voru nýliðar í þýsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. „Frá fyrsta degi fannst mér þetta vera rétta ákvörðunin. Að fá tækifæri til að spila fyrir BHC í Bundesligunni er eitthvað sem mig hefur dreymt um síðan ég var barn,“ sagði Hilding. Hinn 26 ára gamli Hilding hefur sex sinnum leikið í Evrópudeildinni og var fyrirliði HK Malmö. Hann er talinn fjölhæfur leikmaður sem talinn er geta styrkt lið Bergischer bæði varnar og sóknarlega. Tim Hilding er fæddur árið 2000 og hefur leikið með Malmö allan sinn feril, nú færir hann sig hinsvegar um set og flytur til Þýskalands. Fyrrum landsliðsmaðurinn, Arnór Þór Gunnarsson er þjálfari Bergischer.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.