Pólska handknattleikssambandið hefur greint frá því að U18 ára landsliðsmaðurinn Aleksander Sławiński hafi orðið fyrir alvarlegri líkamsárás á dögunum og af þeim sökum missir hann af Evrópumóti U18 landsliða sem hefst síðar í þessum mánuði. Sławiński sem er leikmaður KPR Gryfino varð fyrir árás aðfaranótt 10. júlí í bænum Międzyzdroje þar sem hann var í fríi með fjölskyldu sinni. Hann hafði verið að undirbúa sig fyrir komandi keppnistímabil og Evrópumót U18 landsliða eftir að hafa verið valinn í lokahóp pólska landsliðsins. Vegna alvarlegra meiðsla eftir árásina getur hann hins vegar hvorki tekið þátt í undirbúningi landsliðsins sem hefjast 15. júlí né leikið á Evrópumótinu sem hefst í lok júlí. Samkvæmt upplýsingum frá fjölskyldu leikmannsins var hann fluttur á sjúkrahús föstudaginn 10. júlí. Líf hans er ekki í hættu, en hann er enn undir eftirliti lækna. Meiðslin eru sögð alvarleg, þó ástand hans sé stöðugt. Pólska handknattleikssambandið segist veita Sławiński og fjölskyldu hans allan þann stuðning sem mögulegur er og óskar honum góðs bata. Sambandið lýsir jafnframt yfir von um að hann geti snúið aftur til æfinga og keppni eins fljótt og auðið er. Í yfirlýsingu sambandsins er ofbeldi fordæmt harðlega og áréttað að slíkt eigi hvorki heima í íþróttum né samfélaginu. Málið hefur verið tilkynnt til lögreglu sem rannsakar nú atvikið og vinnur að því að upplýsa aðstæður og hafa uppi á þeim sem bera ábyrgð á árásinni. Pólska handknattleikssambandið hefur jafnframt skorað á alla sem kunna að búa yfir upplýsingum um málið eða hafi orðið vitni að árásinni að hafa samband við lögreglu. Pólland er í riðli með Noregi, Slóvakíu og Danmörku á EM U18 en íslenska landsliðið verður einnig meðal þátttökuþjóða á mótinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.