Hinn ungi og efnilegi línumaður Magnús Kári Magnússon hefur framlengt samningi sínum við Aftureldingu. Magnús Kári gerir þriggja ára samning við félagið sem gildir til ársins 2029. Í tilkynningu félagsins segir að Magnús hafi tekið miklum framförum á síðustu leiktíð og þar er bent á að hann hafi skorað 95 mörk í 17 leikjum með 3. flokki karla ásamt því að hafa spilað alla 22 leikina með Hvíta Riddaranum í Grill 66-deildinni. ,,Magnús er með mikinn metnað og æfir virkilega vel. Það verður gaman að sjá þennan strák halda áfram að vaxa og dafna. Það er alltaf ánægjuefni þegar að ungir og efnilegir leikmenn skrifa undir samninga við félagið," segir ennfremur í tilkynningunni frá Aftureldingu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.