Íslenska drengja landsliðið skipað leikmönnum 20 ára og yngri er komið í milliriðla Evrópumótsins sem fram fer í Rúmeníu þessa dagana eftir torsóttan tveggja marka sigur á Lettum 31-29 í lokaleik sínum í riðlinum. Lettland hafði tapað fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu stórt, með þrettán mörkum gegn Spáni og tíu mörkum gegn Austurríki og það bjuggust því flestir við auðveldum leik drengjanna okkar gegn Lettlandi í dag en annað kom á daginn. Lettarnir hófu leikinn af krafti og komust tveimur mörkum yfir í stöðunni 5-3 og náðu mest fjögurra marka forystu í fyrri hálfleik í stöðunni 11-7. Íslenska liðið vaknaði þá loks til lífs síns og fór með tveggja marka forystu inn í hálfleikinn, 16-14. Jafnræði var með á liðunum í seinni hálfleik en Lettarnir voru þó yfirleitt skrefi á undan. Á síðustu tíu mínútum leiksins reyndist íslenska liðið hinsvegar sterkari aðilinn en eftir að Lettland var yfir í stöðunni 25-24 þá kom góður 4-1 kafli hjá íslenska liðinu sem breytti stöðunni í 27-25 Íslandi í vil. Íslenska liðið hélt því forskoti allt til enda og vann að lokum tveggja marka sigur 31-29 sem tryggði þeim sæti í milliriðil keppninnar. Andri Erlingsson og Harri Halldórsson voru markahæstir í liði Íslands með sjö mörk hvor. Jökull Blöndal Björnsson skoraði sex og Elís Þór Aðalsteinsson skoraði fimm. Alexander Ásgrímsson var með 26% markvörslu í marki Íslands en Jens Sigurðarson kom sterkur inn í markið undir lokin, varði fimm skot og endaði með 39% markvörslu. Íslenska liðið réði illa við Valdis Kalninas langbesta leikmann Lettlands og leikmanns Elverum í Noregi en hann skoraði hvorki meira né minna en 14 mörk í leiknum. Markaskorar Íslands: Andri Erlingsson 7, Harri Halldórsson 7, Jökull Blöndal 6, Elís Þór Aðalsteinsson 5, Ingvar Dagur Gunnarsson 3, Jens Bragi Bergþórsson 2, Ágúst Guðmundsson 1. Markvarsla: Alexander Ásgrímsson 7, Jens Sigurðarson 5.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.