Vilhelm Gauti framlengir í Kórnum
Egill Bjarni Friðjónsson

Vilhelm Gauti Bergsveinsson hefur framlengt samningi sínum við HK og verður áfram við störf hjá félaginu út næsta keppnistímabil.

Vilhelm mun áfram gegna stöðu aðstoðarþjálfara karlaliðs HK í Olís-deildinni auk þess að stýra liði HK 2 í Grill66-deildinni.

Með framlengingunni tryggir HK sér áfram krafta eins reynslumesta þjálfara félagsins. Vilhelm er sannur HK-ingur sem hefur um árabil komið að starfi félagsins, bæði sem leikmaður og þjálfari, og þekkir því vel til innan raða þess.

Í tilkynningu frá HK er Vilhelm sagður hafa unnið afar gott starf á undanförnum árum og verið mikilvægur þáttur í uppbyggingu handknattleiksstarfs félagsins.

HK lýsir jafnframt yfir ánægju með að Vilhelm hafi ákveðið að halda áfram störfum hjá félaginu og segist hlakka til áframhaldandi samstarfs á komandi tímabili.

HK endaði í 8.sæti Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð og tapaði 2-0 gegn Íslandsmeisturum Vals í 8-liða úrslitakeppninnar. Miklar breytingar verða á liði HK fyrir næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top