Hefðum auðveldlega getað tapað leiknum
HSÍ

Íslenska U20 ára karla landsliðið tryggði sér í dag 31-29 sigur á Lettlandi í lokaleik sínum í riðlakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Rúmeníu. Eftir erfiða byrjun sýndi íslenska liðið mikinn karakter, sneri taflinu við og landaði mikilvægum sigri.

Lettarnir byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust fljótlega í 5-3. Þeir náðu síðar fjögurra marka forskoti, 11-7 en þá tók íslenska liðið við sér. Ísland sneri leiknum sér í hag áður en flautað var til leikhlés, og voru 16-14 yfir í hálfleik.

Seinni hálfleikurinn var jafn og spennandi en íslenska liðið hélt haus á lokakaflanum og innsiglaði tveggja marka sigur. Andri Erlingsson og Harri Halldórsson voru markahæstir í íslenska liðinu með sjö mörk hvor. Jökull Blöndal Björnsson bætti við sex mörkum og Elís Þór Aðalsteinsson skoraði fimm.

Lettar áttu jafnframt besta markaskorara leiksins en Valdis Kalninas, leikmaður norska liðsins Elverum, skoraði 14 mörk og reyndist íslensku vörninni afar erfiður viðureignar. Jens Sigurðarson reyndist svo lykilmaður á lokakaflanum þegar hann kom inn í mark Íslands, varði fimm skot og endaði leikinn með 39 prósenta markvörslu.

Ágúst Jóhannsson, þjálfari íslenska liðsins, var ánægður með sigurinn þrátt fyrir að margt hafi mátt betur fara.

„Ég er gríðarlega ánægður að við höfum náð að sigra þennan leik. Þetta tók tíma og mikla þolinmæði. Lettarnir spiluðu langar sóknir og voru mjög skynsamir og agaðir í sínum leik. Á meðan vorum við að fara mjög illa með mikið af upplögðum marktækifærum sem er stór partur af handbolta og við þurfum að gera betur í þeim færum sem við erum að fá. Við erum með 16 sex metra færi sem fara forgörðum, sem er of mikið. Þetta er eitthvað sem við þurfum að lagfæra fyrir næstu leiki.“

Ágúst sagði að íslenska liðið hefði búist við erfiðum leik gegn Lettum.

„Við vissum fyrirfram að Lettarnir væru sýnd veiði en ekki gefin og þeir eru með fína leikmenn, sérstaklega tvær skyttur og stóran línumann. Þeir náðu að gera okkur oft lífið leitt með sínum sóknarleik. Þegar við unnum loks boltann þá vorum við oft sjálfum okkur verstir og fórum illa með boltann.“

Þrátt fyrir það hrósaði hann sínum mönnum fyrir að hafa haldið ró sinni þegar mest á reyndi.

„En það var seigla í liðinu og í okkar leik og við hefðum auðveldlega getað tapað leiknum. Strákarnir sýndu mikla seiglu, karakter og sigurvilja. Við náðum að loka þessum leik sem var aðal málið.“

Nú tekur við hvíldardagur hjá íslenska liðinu áður en milliriðlarnir hefjast á mánudaginn.

„Strákarnir eru komnir í smá afslöppun og hvíld. Það er frídagur á morgun og núna snýst þetta um að hlaða batteríin vel, safna orku og vera tilbúnir í leikina á mánudag og þriðjudag,“ sagði Ágúst Jóhannsson.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top