Sjö íslenskir leikmenn sem léku í Olís-deild karla á síðustu leiktíð hafa ákveðið að halda út í atvinnumennsku fyrir komandi tímabil. Leikmennirnir sjö munu leika í fimm mismunandi löndum og ganga allir til liðs við félög sem ætla sér stóra hluti á næstu leiktíð. Baldur Fritz Bjarnason yfirgefur ÍR og hefur samið við sænska úrvalsdeildarfélagið Kristianstad. Þangað heldur einnig Andri Erlingsson sem kemur frá bikarmeisturum ÍBV en þeir verða því liðsfélagar í Svíþjóð. Hjá Kristianstad sem eru þrefaldir meistarar í Svíþjóð hitta þeir Einar Braga Aðalsteinsson og þá er Gunnar Steinn Jónsson orðinn aðstoðarþjálfari liðsins. Markvörðurinn, Adam Thorstensen sem leikið hefur með Stjörnunni síðustu sex tímabil hefur samið við þýska B-deildarfélagið Lübbecke og fær þar tækifæri til að spreyta sig í einni sterkustu deild Evrópu. Línumaðurinn, Þorvaldur Örn Þorvaldsson yfirgefur Íslands- og deildarmeistara Vals og hefur samið við pólska úrvalsdeildarfélagið Wybrzeże Gdańsk. Tveir leikmenn FH halda einnig út í atvinnumennsku. Garðar Ingi Sindrason hefur samið við þýska stórliðið Gummersbach, þar sem hann mun hefja sinn atvinnumannaferil undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar en fyrir hjá Gummersbach eru landsliðsmennirnir Teitur Örn Einarsson og Elliði Snær Viðarsson, á meðan hægri hornamaðurinn Birgir Már Birgisson flytur sig til Sviss og gengur til liðs við Zürich. Þá gekk línumaðurinn, Jón Ómar Gíslason í raðir Bregenz í Austurríki á dögunum en hann var tilkynntur hjá félaginu í gær. Jón Ómar er annar Íslendingurinn sem gengur í raðir Bregenz á stuttum tíma en Guðmundur Bragi Ástþórsson leikur einnig með liðinu á næstu leiktíð. Brottför þessara sjö leikmanna er enn ein staðfestingin á því að félögin í Olís-deildinni halda áfram að ala upp leikmenn sem vekja athygli erlendra félaga.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.