Vonast til að Costa fylli skarð Pytlick
Michael Hundt / dpa Picture-Alliance via AFP)

Þýski landsliðsmaðurinn Marko Grgic telur að koma franska leikstjórnandans Aymeric Minne muni lyfta leik SG Flensburg-Handewitt upp á nýtt stig. Jafnframt segir hann það vera draumasviðsmynd ef portúgalski landsliðsmaðurinn Martim Costa tæki við af Simon Pytlick þegar Daninn yfirgefur félagið árið 2027.

Í viðtali við HandNews segir Grgic að Flensburg hafi lengi skort hreinan leikstjórnanda og að Minne sé einmitt sá leikmaður sem geti fyllt það skarð.

„Hann er frábær leikmaður með gríðarlega góðan leikskilning. Hann er púsluspilið sem okkur hefur vantað undanfarin ár. Leikur okkar verður kraftmeiri og hraðari því þannig spilar Aymeric,“ sagði Grgic.

Þá ræddi þýski landsliðsmaðurinn einnig um sögusagnir sem hafa tengt portúgölsku bræðurna Martim og Kiko Costa við Flensburg á undanförnum mánuðum.

Grgic viðurkennir að hann yrði afar spenntur ef Martim Costa myndi ganga til liðs við félagið þegar Simon Pytlick flytur sig um set til Füchse Berlin sumarið 2027.

„Handboltalega séð væri það stórkostlegt. Við vitum að Simon Pytlick skiptir yfir til Füchse Berlin árið 2027. Að fá eftirmann á borð við Martim Costa, væri einstakt fyrir félagið og einnig fyrir þýsku Bundesliguna,“ sagði Grgic.

Pytlick hefur þegar samið við Füchse Berlin frá og með sumrinu 2027 og því er ljóst að Flensburg þarf að fylla stórt skarð í leikmannahópnum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top