Elísa missir af upphafi tímabilsins
Baldur Þorgilsson

Elísa Elíasdóttir línumaður Vals og íslenska landsliðsins er smám saman að nálgast endurkomu eftir aðgerð sem hún gekkst undir í maí. Hún verður þó ekki með Val þegar tímabilið hefst.

Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, segir Elísu vera að koma hægt og rólega til baka. Elísa fór í aðgerð á öxl en þau meiðsli hafi verið að stríða henni yfir langan tíma.

„Elísa fer í nánari skoðun eftir helgi en það er alveg ljóst að hún verður ekki með okkur í byrjun tímabils," sagði Anton Rúnarsson í samtali við Handkastið.

Þar með er ljóst að Elísa verður ekki með Val þegar liðið mætir Haukum í Meistarakeppni HSÍ á föstudaginn klukkan 18:00 en sá leikur fer fram í Valsheimilinu. Klukkan 20:15 mætast síðan karlalið sömu félaga í Meistarakeppni karla.

Valur fær síðan nýliða Víkings í heimsókn í 1.umferð Olís-deildarinnar, laugardaginn 5.september.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top