Víkingur dregur lið sitt úr keppni í Olís-deildinni
Emma Elísa Jónsdóttir

Kvennalið Víkings hefur dregið lið sitt úr keppni í Olís-deildinni en þetta tilkynnti HSÍ nú rétt í þessu. Þar segir einnig að Selfoss mun leika í Olís-deildinni í þeirra stað.

,,Selfoss mun leika í Olísdeild kvenna á komandi keppnistímabili. Víkingur dregur lið sitt úr deildinni og Selfyssingum hefur boðist sætið sem þar með losnar.  Víkingur mun jafnframt leika í Grill 66 deild kvenna á komandi tímabili," segir í tilkynningunni frá HSÍ.

Í gær var tilkynnt að Eva Hrund Harðardóttir þjálfari kvennaliðs Víkings hafi hætt með liðið af persónulegum ástæðum en illa hefur gengið hjá liði Víkings á undirbúningstímabilinu.

,,Víkingur var meðal liðanna tíu sem skráð voru til leiks í Olísdeild kvenna, ásamt Val, ÍBV, Haukum, ÍR, Fram, KA/Þór, Stjörnunni, HK og Gróttu. Með þessari breytingu tekur Selfoss sæti Víkings og deildin verður áfram skipuð tíu liðum," segir enn fremur.

Þá segir ennfremur að nánar verði farið yfir þetta mál á kynningarfundi Olís- og Grill 66 deildarinnar sem fram fer á morgun klukkan 12:15.  Honum verður streymt í beinni á YouTube rás HSÍ.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top