Gísli Steinar tekur við Víkingi
Víkingur

Gísli Steinar Jónsson hefur tekið við kvennaliði Víkings af Evu Hrund Harðardóttur sem sagði upp störfum sem þjálfari liðsins í gær af persónulegum ástæðum.

Gísli Steinar var nýlega ráðinn inn sem aðstoðarþjálfari Víkings en hann hefur þjálfað í Vestmannaeyjum undanfarin ár.

,,Það er okkur sönn ánægja tilkynna að Gísli Steinar Jónsson hefur gert tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Víkings um þjálfun meistaraflokks kvenna," segir í tilkynningunni frá Víkingi en Gísli Steinar gerir tveggja ára samning við félagið.

Gísli er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Hann hefur undanfarin ár þjálfað 3. og 4. flokk kvenna hjá ÍBV. Þá hefur hann einnig þjálfað yngri flokka kvenna hjá Fjölni ásamt því að sinna þjálfun meistaraflokks kvenna hjá félaginu. Fyrir þann tíma bjó hann í Noregi og þjálfaði yngri flokka hjá Fet IL í sex ár.

,,Það eru spennandi tímar framundan í félaginu og er ráðning Gísla mikilvægur hluti í miklum og örum vexti handknattleiksdeildar Víkings," segir ennfremur í tilkynningu Víkings sem birtist nokkrum mínútum eftir að liðið dró sig úr keppni í Olís-deild kvenna og hyggst leika í Grill66-deildinni á komandi tímabili.

Ekki er nema níu dagar í að Olís-deild kvenna hefjist.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top