Briet bætir nýju vopni í vopnabúr Magdeburg
Julien Kammerer / DPPI via AFP

Franski landsliðsmaðurinn, Thibaud Briet gengur til liðs við SC Magdeburg sumarið 2028 en Bennet Wiegert þjálfari þýsku meistarana er þegar farinn að velta fyrir sér hvernig best sé að nýta Frakkann.

„Ef hann getur farið í maður á mann árásir og skotið af níu metrum, hvar eru þá mörkin?“ sagði Wiegert í hlaðvarpinu Kretzsche & Schmiso.

Maður á mann árásir Magdeburg hefur verið eitt af aðalsmerkjum liðsins undanfarin ár með undaverðum árangri. Liðið hefur verið einstaklega gott í að skapa einvígi fyrir skyttur sínar og nýta þau til að brjóta niður varnir. Með Briet bætist hins vegar ný vídd við. Hann er sterkur maður á mann árásum en er jafnframt með kraft og getu til að skjóta yfir vörnina utan af velli.

Þannig gæti Magdeburg fengið enn fleiri möguleika til að skora utan af velli án þess að þurfa að breyta sínum leikstíl auk þess sem Briet er afar sterkur varnarmaður.

Briet verður áfram hjá Nantes þangað til samningur hans við félagið rennur út sumarið 2028.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top