Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum. Olís-deild karla hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni. Í dag förum við yfir KA. Síðasta tímabil: Þjálfarinn: Breytingar Fylgist með:
Tímabilið í fyrra var frábært þar sem liðið komst bæði í undanúrslit í bikarkeppninni og einnig í undanúrslit um Íslandsmeistaratitilinn þar sem liðið tapaði 3-0 gegn Íslandsmeisturum Vals en mikil skörð voru höggvin í KA liðið undir lok tímabilsins vegna meiðsla. KA naga sig eflaust enn í handarbökin við að hafa tapað gegn ÍR í bikarnum á Ásvöllum. Heimavöllurinn var sterkari en hann hafði verið undanfarin ár og tóku stuðningsmenn KA við sér og hjálpuðu til við að gera KA heimilið aftur af þeirri gryfju sem það var hér á árum áður.
Andri Snær Stefánsson tók við liðinu síðasta sumar eftir að liðið hafði verið lengi þjálfara laust. Andri Snær gerði frábæra hluti með liðið á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari og náði að kveikja stemmningu í hópnum sem smitaði sér út í félagið og dró fleiri stuðningsmenn á völlinn.
KA gerði vel á leikmannamarkaðnum í vetur og sóttu Ágúst Elí Björgvinsson og Dag Gautason á miðju tímabili sem styrktu liðið vel. Dagur Árni Heimisson er einnig kominn aftur heim til KA eftir að hafa verið seldur í Val á síðasta tímabili en ekki fundið sig þar vegna meiðsla. Einar Rafn Eiðsson er farinn til FH og Jóhann Geir Sævarsson er farinn yfir í þorpið til Þórsara.
Lykilmenn:
Bjarni Ófeigur Valdimarsson, Ágúst Elí Björgvinsson, Dagur Árni Heimisson
Dagur Árni Heimisson er kominn aftur heim eftir ársdvöl hjá Íslandsmeisturum Vals þar sem meiðsli settu stóran strik í reikninginn. Nú er faðir hans kominn inn í þjálfarateymið sem gæti hjálpað drengnum. Ef allt smellur, gæti Dagur verið púslið sem liðið vantaði á síðustu leiktíð.
Framtíðin:
Jens Bragi Bergþórsson hefur stimplað sig inn sem einn af betri línumönnum deildarinnar. Hlutverk hans í liðinu hefur stækkað og hann gæti heldur betur stimplað sig inn í vetur. Afar lunkinn línumaður sem þyrfti að bæta varnarleik sinn til að taka næsta skref á ferlinum.
Við hverju má búast:
KA ætla sér klárlega meira en í fyrra og setja stefnuna hátt. Liðið hefur styrkst í sumar eftir frábæran árangur í fyrr en mig grunar að þeir hefðu gott af því að sækja sér örvhentan leikmann fyrir átökin í vetur þar sem mikil skakkaföll urðu á hægri vængnum undir lok síðasta tímabils. Ef heimavöllurinn verður áfram sama gryfja og í fyrra má búast við að fá lið í deildinni munu fari með stig heim úr KA heimilinu í vetur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.