Markmannsþjálfari Stjörnunnar gæti spilað gegn Stjörnunni
Egill Bjarni Friðjónsson

Það gæti verið forvitnileg sögulína í leik FH og Stjörnunnar í 1. umferð Olís-deildar karla á föstudaginn. FH er í markmannsvandræðum eftir að Daníel Freyr Andrésson sleit hásin á dögunum og gæti fyrrverandi markvörður ÍR, Ólafur Rafn Gíslason, verið á leið aftur í markið.

„Það gæti verið sögulína í þessum leik, haldið þið að markmannsþjálfari Stjörnunnar verði í marki FH í þessum leik, Ólafur Rafn Gíslason“ sagði Stymmi klippari í nýjasta þætti Handkastsins.

Ólafur Rafn lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil eftir að hafa leikið með ÍR undanfarin ár en tók í sumar við starfi markmannsþjálfara hjá yngri flokkum Stjörnunnar. Hann kom hins vegar FH til aðstoðar í æfingaleik gegn Fram um síðustu helgi og lék þá einn hálfleik.

FH þarf nú mögulega á kröftum hans að halda eftir meiðsli Daníels Freys og í Handkastinu var því velt upp hvort Ólafur Rafn gæti tekið fram hanskana á ný.

„Er ekki komið fordæmi fyrir því að menn vinni fyrir 2-3 félög í einu?“ sagði Sigurjón Friðbjörn og vísaði þar mögulega til Sebastians Alexanderssonar sem er þjálfari kvennaliðs Aftureldingar og starfar jafnframt sem tækniþjálfari hjá Haukum.

Stymmi taldi þetta tækifæri sem Ólafur Rafn ætti erfitt með að hafna.

„Þetta er tækifæri fyrir Óla sem hann getur varla sleppt. Með fullri virðingu þá hefur hann aldrei verið í félagi þar sem hann hefur verið að keppa um titla,“ sagði Stymmi.

Sigurjón tók undir og benti á að mögulegt endurkomuævintýri Ólafs Rafns gæti orðið ansi áhugavert.

„Pælið í þessu, ef hann fer í FH þá er hann að fara í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Hversu stórt er það? Ef ég væri markmaður sem væri hættur þá væri ég búinn að kasta nafninu mínu í hattinn hjá FH-ingum. Þetta er örugglega geðveikt dæmi,“ sagði Sigurjón.

Það verður þó ekki hægt fyrir Stjörnuna að stilla upp Bjarka Jóhannssyni gegn FH. Bjarki gekk nýverið í raðir Stjörnunnar á láni frá FH og staðfesti Stymmi í þættinum að hann megi ekki spila leikinn á föstudag.

Stymmi hallast sjálfur að FH-sigri í leiknum.

„Stjarnan hefur ekki unnið æfingaleik fyrir mót, er þetta ekki bara þægilegur FH-sigur? Leikir Stjörnunnar og FH hafa yfirleitt alltaf leitað í jafnvægi undanfarin ár en ég held að FH fari með sigur af hólmi þarna,“ sagði Stymmi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top