Haukar hófu leik í Olís-deild karla af miklum krafti þegar liðið vann öruggan 38-29 sigur á ÍBV í lokaleik 1. umferðarinnar í Kuehne+Nagel-höllinni í kvöld. Haukar lögðu grunninn að sigrinum strax í fyrri hálfleik. Freyr Aronsson var sjóðandi heitur í upphafi og hafði skorað fimm af fyrstu níu mörkum Hauka þegar staðan var 9-4 eftir rúmlega 18 mínútna leik. Eyjamenn áttu í miklum vandræðum sóknarlega á sama tíma. Grétar Ari Guðjónsson varði vel í marki Hauka og varði alls tíu skot í leiknum. Haukar gengu á lagið og náðu mest átta marka forskoti í fyrri hálfleik 18-10 áður en Daníel Þór Ingason skoraði síðasta mark hálfleiksins fyrir ÍBV. Staðan í hálfleik var 18-11 fyrir Hauka. ÍBV fékk ágæta byrjun á síðari hálfleik og Daníel Þór skoraði tvö fyrstu mörk Eyjamanna eftir hlé. Haukar voru þó fljótir að slökkva þær vonir sem gestirnir höfðu um endurkomu. Freyr hélt áfram þar sem frá var horfið og þegar rúmar 38 mínútur voru liðnar hafði hann komið Haukum í 25-17. Össur Haraldsson tók síðan við keflinu og Haukar héldu Eyjamönnum í þægilegri fjarlægð. Munurinn varð mestur níu mörk, meðal annars í 30-21 þegar tólf mínútur voru eftir. ÍBV náði aldrei að setja alvöru pressu á heimamenn eftir það og Haukar sigldu sigrinum örugglega í höfn. Lokamínúturnar breyttu litlu. Sigtryggur Daði Rúnarsson minnkaði muninn í 37-29 þegar örfáar sekúndur voru eftir en Arnór Róbertsson skoraði síðasta mark leiksins um leið og leiktíminn rann út og gulltryggði 38-29 sigur Hauka. Freyr Aronsson var maður leiksins 11 mörk. Össur Haraldsson bætti við sjö mörkum en Birkir Snær Steinsson og Skarphéðinn Ívar Einarsson skoruðu fjögur mörk hvor. Grétar Ari Guðjónsson varði tíu skot í marki Hauka. Hjá ÍBV var Daníel Þór Ingason markahæstur með sex mörk. Kristófer Ísak Bárðarson og Sigtryggur Daði Rúnarsson skoruðu fimm mörk hvor og Atli Steinn Arnarson fjögur. Petar Jokanovic varði fimm skot í marki Eyjamanna. Þar með er 1. umferð Olís-deildar karla lokið og Haukar fara af stað með sannfærandi sigri. Leikurinn var fyrir fram einn af áhugaverðari leikjum umferðarinnar enda var Haukum spáð deildarmeistaratitli í spá þjálfara og fyrirliða deildarinnar fyrir tímabilið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.