Jóhanna Margrét með skotsýningu í 8 marka sigri Hauka á nýliðum HK
Haukar)

Haukar og HK mættust í dag á Ásvöllum í Olís deild kvenna.

Hauka stelpur mættu mun grimmari og ferskari til leiks og komust fljótt í 5-1. Áfram juku þær forskotið og náðu mest að komast 7 mörkum yfir í fyrri hálfleik.

HK stelpur klóruðu aðeins í bakkann undir lok fyrri hálfleiks og voru hálfleikstölur 14-11 fyrir heimakonur í Haukum.

Í seinni hálfleik benti ekkert til þess að HK stelpur myndu jafna þennan leik og fá eitthvað út úr honum. Hauka stelpur komust mest 9 mörkum yfir og urðu lokatölur 28-20 fyrir Hauka.

Fín byrjun hjá Haukum og ljóst að þær ætla sér mikið í vetur.

Nýliðar HK sýndu fína spretti inn á milli en voru með 18 tapaða bolta í dag sem er eitthvað sem þær þurfa að laga fyrir næstu leiki.

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir bauð upp á skotsýningu í dag og skoraði 15 mörk í 26 skotum. Sara Sif Helgadóttir varði 16 skot og var með 44% markvörslu.

Tinna Ósk og Valgerður Ýr voru markahæstar hjá HK með 5 mörk. Danijela Sara og Elísabet Millý vörðu samtals 11 skot í dag.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top