Jóhann lokaði búrinu í jafntefli Fram og Víkings
Fram

Í dag mættust Fram 2 og Víkingur 2 í Grill 66 deild karla en leikið var í Lambhagahöllinni.

Fyrri hálfleikur var lengi vel nokkuð jafn en seinnipart fyrri hálfleiks voru Víkingar alltaf skrefi á undan.

Hálfleikstölur voru 14-18 fyrir Víking. Víkingar héldu forskotinu áfram fyrsta korterið í seinni hálfleik en Framarar náðu að jafna í 24-24. 7 mínútum fyrir leikslok voru Framarar komnir í vænlega stöðu 3 mörkum yfir en Víkingar komu til baka og voru komnir yfir þegar lítið var eftir.

Mikael Hrafn Loftsson jafnaði svo metin í 31-31 fyrir Framara þegar skammt var eftir og urðu það lokatölur í sveiflukenndum leik.

Jóhann Ágústsson átti frábæran leik í marki Fram 2 og varði 23 skot. Jón Sigurður Bjarnason skoraði 6 mörk fyrir Fram.

Hjá Víkingum var Benedikt Emil Aðalsteinsson markahæstur með 8 mörk. Kristján Rafn Oddsson varði 11 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top