Haukar 2 og Valur 2 mættust í dag í KFUM slagnum á Ásvöllum í Grill 66 deild karla. Leikurinn var gríðarlega jafn í fyrri hálfleik. Liðin skiptust á að hafa forskotið, en yfirleitt bara með 1 marki. Þess á milli var leikurinn jafn. Hálfleikstölur voru 16-16. Það sama var upp á teningunum í seinni hálfleik. Annaðhvort var leikurinn jafn eða annað liðið að leiða með einu marki. 2 flott lið að etja kappi og mikið af ungum og efnilegum mönnum í báðum liðum. Lokatölur urðu að lokum 26-26. Ari Dignus Maríuson markmaður Hauka 2 varði síðustu 2 skotin fyrir Hauka og tryggði 1 stig fyrir sína menn í jöfnum, spennandi og skemmtilegum leik. Hjá Val var Bjarki Snorrason markahæstur með 6 mörk. Markmennirnir Anton og Þórhallur tóku samtals 6 skot. Hjá Haukum var Daniel Wale Adeleye markahæstur með 7 mörk. Ari Dignus varði 14 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.