Hvíti Riddarinn með sigur á Fjölni í Egilshöll
Sævar Jónasson

Í dag mættust Fjölnir og Hvíti Riddarinn í Grill 66 deild karla en leikið var í Egilshöll.

Liðsmenn Hvíta Riddarans úr Mosfellsbæ voru mun ferskari og betri í fyrri hálfleik og náðu mest 6 marka forskoti. Fjölnismenn voru ekki að finna sig og það munaði mikið um fyrir þá að Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson var fjarverandi vegna meiðsla.

Staðan í hálfleik var 12-16 fyrir gestina úr Mosfellsbæ.

Í seinni hálfleik mættu Fjölnis menn mun beittari og grimmari til leiks en í fyrri hálfleik og eftir korters leik voru þeir búnir að jafna metin í 21-21. Fjölnir komst svo yfir í 23-22 þegar 10 mínútur lifðu leiks. Hvíti Riddarinn náðu svo að snúa leiknum sér aftur í hag á síðustu 10 mínútunum og uppskáru sigur 26-29.

Hjá Hvíta Riddaranum voru Gísli Rúnar Jóhannsson og Haukur Guðmundsson markahæstir með 6 mörk. Sigurjón Bragi Atlason varði 11 skot.

Hjá Fjölni var Akureyringurinn Heiðmar Örn Björgvinsson markahæstur með 9 mörk. Garpur Gylfason varði 11 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top