Selfyssingar tóku 2 stig úr Kórnum
Egill Bjarni Friðjónsson

HK 2 og Selfoss 2 mættust í dag í Kórnum í Grill 66 deild karla.

HK-ingar voru betri fyrstu 10 mínúturnar en síðan tóku Selfyssingar við sér. Voru þeir mun betri það sem eftir lifði hálfleiks og fóru inn til búningsherbergja með 5 marka forskot. 14-19 voru hálfleikstölur.

Eftir 10 mínútna leik í seinni hálfleik náðu HK-ingar að jafna leikinn í 20-20. Seinustu 20 mínúturnar voru gestirnir frá Selfossi hinsvegar betri aðilinn og náðu mest að komast 4 mörkum yfir í 21-25.

Fór það svo að Selfyssingar sigruðu naumlega 29-30 og keyra með stigin 2 yfir Hellisheiðina.

Hjá Selfossi var Aron Leo Guðmundsson markahæstur með 8 mörk. Ísak Kristinn Jónsson varði 11 skot.

Mikael Máni Weisshappel var markahæstur hjá HK með 9 mörk. Patrekur Guðni Þorbergsson varði 7 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top