Í kvöld mættust Grótta og Víðir í Grill 66 deild karla á Seltjarnarnesi. Leikurinn var mjög jafn fyrst um sinn og eftir 12 mínútna leik var staðan 8-8. Þá vöknuðu Gróttu menn loksins til lífsins og voru frábærir það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Ótrúlegur viðsnúningur varð og var staðan 23-13 í hálfleik. Eftir korters leik í seinni hálfleik var staðan skyndilega orðin 31-17 og Víðis menn sprungnir á limminu. Lokatölur urðu 43-22. Frábær byrjun á mótinu hjá heimamönnum í Gróttu. Sæþór Atlason bauð upp á skrautsýningu og setti hvorki meira né minna en 16 mörk. Hannes Pétur Hauksson varði 13 skot. Hjá Víði var Szymon Kowal markahæstur með 7 mörk og Jan Widera varði 11 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.