Sjáðu stórkostlegt mark Dags Gauta gegn HK
Egill Bjarni Friðjónsson

Dagur Gautason skoraði frábært mark fyrir KA í öruggum níu marka liðsins gegn HK í opnunarleik Olís-deildarinnar í gærkvöldi. Lokatölur 27-36 fyrir KA sem hefja leiktíðina af miklum krafti.

Dagur hafði hægt um sig í leiknum og skoraði aðeins tvö mörk en seinna markið hans var af dýrari gerðinni.

Dagur tók hringfintu á Tómas Braga Starrason leikmann HK og skildi hann eftir í reyk og skoraði síðan framhjá Brynjari Vigni Sigurjónssyni markverði HK í kjölfarið.

Markið má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top