Rafmagnslaust er í Mynktkauphöllinni þar sem leikur Aftureldingar og Víkings var í gangi. Staðan var 17-12 að loknum fyrri hálfleik Aftureldingu í vil. Óljóst er að svo stöddu hvort leiknum verði haldið áfram en rafmagnslaust er í Mosfellsbænum og Reykjavík. Uppfært kl. 21:25: Upphaflega var gefið út að staðan yrði endurmetin kl. 21:00 og var þá ákveðið að leiknum skyldi frestað.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.