Füchse Berlin með franskan landsliðsmann efstan á óskalistanum
Julien Kammerer / DPPI via AFP

Þýska stórliðið Füchse Berlin vinnur að því að styrkja leikmannahóp sinn og hefur augastað á franska landsliðsmanninum Aymeric Zaepfel, leikmanni PAUC í Frakklandi.

Bob Hanning, framkvæmdastjóri Füchse Berlin, staðfesti í tengslum við leik liðsins gegn Magdeburg á fimmtudagskvöld að félagið stefni á að bæta við sig leikmanni.

„Ég tel að það muni bætast annar leikmaður við hjá okkur,“ sagði Hanning.

Samkvæmt þýskum fjölmiðlum er Zaepfel efstur á óskalista Berlínarliðsins. Hann er 24 ára gamall, leikur í vinstri skyttustöðunni og lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir Frakkland í maí 2025. Hann var síðan í leikmannahópi Frakka á Evrópumótinu í byrjun þessa árs.

Füchse þarf á frekari breidd að halda í vinstri skyttustöðunni eftir að danski landsliðsmaðurinn Lasse Andersson yfirgaf félagið í sumar og gekk til liðs við HØJ Elite. Matthes Langhoff hefur því borið mikla ábyrgð í stöðunni það sem af er tímabili.

Það gæti þó kostað sitt að fá Zaepfel til Berlínar. Frakkinn er samningsbundinn PAUC til sumarsins 2028 og því þyrfti Füchse að greiða kaupverð fyrir hann. Talið er að Frakkarnir gætu farið fram á á bilinu 80–100 þúsund evrur fyrir Zaepfel, sem samsvarar um 11–14 milljónum íslenskra króna.

Füchse virðist því ætla að bregðast hratt við áður en Meistaradeildin fer af stað en liðið mætir Partizan Belgrad í fyrstu umferð riðlakeppninnar á fimmtudaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top