
Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum. Olís-deild kvenna hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni. Í dag förum við yfir Fram. Síðasta tímabil: Þjálfarinn: Breytingar: Fylgist með: Sjá einnig:
Fram fór í undanúrslit bikarkeppninnar en tapaði í undanúrslitum gegn Haukum. Liðið endaði í 5.sæti deildarinnar og tapaði fleiri leikjum en það vann á tímabilinu sem verður að teljast vonbrigði í Úlfarsárdalnum. Liðið náði aldrei almennilegu flugi og var frammistaða liðsins of tilviljunarkennd. Fram leið vel gegn ÍR en þær slóu þær bæði út í bikarnum og fyrstu umferð úrslitakeppninnar en liðið féll úr leik í undanúrslitum gegn Val.
Haraldur Þorvarðarson er á leið inn í sitt annað tímabil með kvennaliðs Fram. Hann sótti Díönu Guðjónsdóttur sem aðstoðarþjálfara og við það styrkist þjálfarateymið mikið.
Fram missti nánast heilt byrjunarlið fyrir síðustu leiktíð. Haraldur gerði hinsvegar ágætlega úr því sem hann hafði og nú á að taka næsta skref. Alfa Brá Hagalín er farin í atvinnumennsku og þá hefur Ásdís Guðmundsdóttir yfirgefið félagið, með látum. Fram hefur hinsvegar fengið Lenu Margréti Valdimarsdóttur heim úr atvinnumennsku og bætt við sig fleiri leikmönnum sem eykur breidd liðsins.Fram er líklega það lið sem er með mestu breiddina í leikmannahópi sínum.
Lykilmenn:
Lena Margrét Valdimarsdóttir, Ethel Gyða Bjarnasen, Hulda Dagsdóttir
Lena Margrét Valdimarsdóttir er komin heim í Fram eftir veru í atvinnumennsku í Svíþjóð og eftir að hafa spilað hjá Stjörnunni þar á undan. Ljóst er að mikils er vænst af Lenu en hún er nú einn af reynslumeiri leikmönnum Fram liðsins.
Framtíðin:
Katla Kristín Hrafnkelsdóttir er ung skytta sem er mjög sterk einn á móti einum. Hún tók þótt í verkefni í Póllandi með U18 ára landsliðinu í sumar og hefur verið í stóru hlutverki með Fram 2 síðustu árin.
Við hverju má búast:
Það er erfitt að segja hverju má búast við en liðið er að missa lykilleikmann í Ölfu Brá sem var gríðarlega stór hlekkur í sóknarleiknum. Liðið er samt mjög sterkt og það væru vonbrigði í Úlfarsárdalnum ef liðið verður ekki í toppbáráttu.
Umfjöllun um kvennalið Stjörnunnar
Umfjöllun um karlalið Hauka
Umfjöllun um karlalið Fram
Umfjöllun um karlalið KA
Umfjöllun um karlalið Stjörnunnar
Umfjöllun um kvennalið Gróttu
Umfjöllun um karlalið FH
Umfjöllun um karlalið HK
Umfjöllun um kvennalið ÍBV
Umfjöllun um kvennalið Hauka
Umfjöllun um kvennalið Vals
Umfjöllun um kvennalið KA/Þórs
Umfjöllun um karlalið Selfoss
Umfjöllun um karlalið Víkings
Umfjöllun um karlalið Þórs
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals
Umfjöllun um kvennalið ÍR

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.