Pétur Þór og Eiríkur framlengja í Grafarvoginum
Fjölnir

Pétur Þór Óskarsson og Eiríkur Emil Hákonarson hafa framlengt samninga sína við Fjölni til tveggja ára.

Pétur Þór er ungur og efnilegur markmaður, fæddur árið 2009 og uppalinn hjá Fjölni. Eiríkur Emil er sömuleiðis uppalinn í Fjölni og er örvhentur hornamaður.

,,Pétur átti gott tímabil á síðasta ári þar sem hann tók stór skref í sinni þróun og fékk dýrmæta reynslu með meistaraflokki. Miklar vonir eru bundnar við Pétur og verður spennandi að fylgjast með honum fá fleiri tækifæri með liðinu á næstu árum," segir í tilkynningunni frá Fjölni.

„Ég er mjög spenntur fyrir komandi tímabili og hef mikla trú á liðinu,“ segir Pétur Þór.

,,Eiríkur Emil hefur tekið miklum framförum undanfarin ár. Hann er öflugur skotmaður sem hefur alla burði til að taka að sér stærra hlutverk með meistaraflokki á komandi árum," segir enn fremur í tilkynningunni frá félaginu.

Eiríkur Emil er ánægður með að framtíðin sé í Grafarvoginum. „Ég er mjög glaður að vera búinn að skrifa undir nýjan samning og er spenntur fyrir komandi tímabili.“

Í tilkynningunni segir að meistaraflokksráð karla fagnar því að þeir Pétur Þór og Eiríkur Emil hafi framlengt við félagið. Báðir eru uppaldir Fjölnismenn sem hafa sýnt miklar framfarir og verður spennandi að fylgjast með þeim halda áfram að þróast og taka næstu skref með meistaraflokki.

Fjölnir mætir Hvíta riddaranum í 1.umferð Grill66-deildarinnar í dag klukkan 15:30.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top