Fjórir leikir fóru fram í þýsku Bundesligunni í dag þar sem nokkrir Íslendingar komu við sögu. Rhein-Neckar Löwen vann sinn fyrsta leik á tímabilinu, Gummersbach og Melsungen skildu jöfn eftir mikla dramatík og Flensburg er áfram með fullt hús stiga á toppi deildarinnar. SG Flensburg-Handewitt vann sinn þriðja leik í jafn mörgum tilraunum þegar liðið lagði HC Erlangen, 38-33. Flensburg leiddi 23-20 í hálfleik og hélt Erlangen frá sér þrátt fyrir að gestirnir næðu að minnka muninn niður í tvö mörk í síðari hálfleik. Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt mark fyrir Flensburg en Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson eru enn að glíma við meiðsli. Emil Jakobsen var markahæstur Flensburg með tíu mörk, þar af sex úr vítum, en Simon Pytlick skoraði níu. Hjá Erlangen voru Falk Bandlow og Marko Nissen markahæstir með átta mörk hvor. Hannover-Burgdorf vann Hamburg, 30-28, í hörkuleik. Hannover leiddi 15-14 í hálfleik og var lítið á milli liðanna allt fram á lokamínúturnar. Marius Steinhauser var markahæstur Hannover með sex mörk en Justus Fischer skoraði fimm. Hjá Hamburg var William Aar markahæstur með átta mörk. Mikil dramatík var þegar VfL Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, tók á móti MT Melsungen. Liðin skildu jöfn, 31-31. Melsungen leiddi 18-16 í hálfleik en Gummersbach vann sig inn í leikinn eftir hlé. Heimamenn komust í 31-30 undir lokin áður en Melsungen jafnaði. Gummersbach fékk tækifæri til að vinna leikinn en Nebojsa Simic varði síðasta skotið. Nikola Roganovic átti stórleik fyrir Gummersbach og skoraði hvorki meira né minna en 16 mörk. Aaron Mensing var markahæstur Melsungen með níu mörk. Elliði Snær Viðarsson skoraði eitt mark fyrir Gummersbach en Garðar Ingi Sindrason komst ekki á blað. Reynir Þór Stefánsson var í leikmannahópi Melsungen en skoraði ekki. Rhein-Neckar Löwen vann sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar liðið hafði betur gegn Bergischer HC, 27-26, í miklum spennuleik. Löwen leiddi 14-13 í hálfleik og náði fjögurra marka forskoti snemma í síðari hálfleik. Bergischer kom hins vegar til baka og komst yfir, 21-20, áður en Löwen tók aftur stjórnina. Haukur Þrastarson átti góðan leik og skoraði fimm mörk fyrir Löwen. Hann skoraði meðal annars gríðarlega mikilvægt mark þegar rúm mínúta var eftir sem kom Löwen í 27-24. Bergischer skoraði síðustu tvö mörkin en nær komst liðið ekki. Dani Baijens var markahæstur í liði Lowen með sjö mörk. SG Flensburg-Handewitt – HC Erlangen 38-33Úrslit dagsins
TSV Hannover-Burgdorf – HC Hamburg 30-28
VfL Gummersbach – MT Melsungen 31-31
Bergischer HC – Rhein-Neckar Löwen 26-27

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.