Íslendingaliðin á sigurbraut í Noregi
Eyjólfur Garðarsson

Þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni í norsku úrvalsdeildinni í dag og þau unnu öll en þetta var jafnframt fyrsti sigur allra þriggja.

Nýliðar Viking unnu sex marka sigur á Sandnes á heimavelli, 35-29 þar sem Tryggvi Garðar Jónsson skoraði eitt mark úr einu skoti fyrir heimamenn. Góður sigur hjá Viking sem tapaði fyrsta leiknum fyrir Elverum stórt.

Sigurjón Guðmundsson átti frábæran leik í marki Sandefjord þegar liðið spilaði sinn fyrsta leik á heimavelli gegn Kristiansand. Heimamenn unnu með minnsta mun, 31-30 en Sigurjón varði átta skot af þeim tuttugu og tveimur sem hann fékk á sig eða 36% markvarsla. Flott byrjun hjá Sigurjóni sem skipti yfir til Sandefjord í sumar.

Að lokum unnu Drammen góðan útsigur á Fjellhammer, 26-29 en Ísak Steinsson fékk tækifæri í marki Drammen en átti erfitt uppdráttar og varði aðeins eitt skot af þeim fjórtán sem hann fékk á sig eða 7% markvarsla.

Úrslit dagsins:

Viking 35-29 Sandnes

Sandefjord 31-30 Kristiansand

Fjellhammer 26-29 Drammen

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top