Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, hefur valið 22 leikmenn sem koma saman til æfinga mánudaginn 21. september. Landsliðið mun æfa hér á landi út vikuna. Þetta verður síðasta verkefni liðsins hérlendis fyrir Evrópumótið. Landsliðið kemur næst saman 18. október í Póllandi og leikur þar tvo vináttulandsleiki við pólska landsliðið. Tveir leikmenn í hópnum eiga enn eftir að leika sinn fyrsta A-landsleik. Það eru þær Embla Steindórsdóttir, leikmaður Hauka og Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir, leikmaður Selfoss. Landsliðshópurinn Markverðir Aðrir leikmenn

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.