Aron leysir vandræði Íslands – Gott að geta aðstoðað HSÍ
Johan Nilsson / AFP

Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari Kúwait, segir mikla ánægju ríkja með að liðið komi til Íslands í lok árs og leiki tvo vináttulandsleiki gegn íslenska landsliðinu í aðdraganda HM í Þýskalandi í janúar.

Kúwait verður við æfingar hér á landi frá 28. desember og mætir Íslandi í Laugardalshöllinni 7. og 9. janúar. Leikirnir verða liður í lokaundirbúningi beggja liða fyrir heimsmeistaramótið.

Upphaflega stóð til að Egyptaland kæmi til Íslands en þegar það gekk til baka hafði Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands, samband við Aron.

„Snorri heyrði í mér og sagði mér að Egyptarnir væru búnir að hætta við að koma til Íslands og spurði mig hvort það væri möguleiki fyrir okkur að koma með Kúwait til Íslands,“ sagði Aron í samtali við Handkastið.

Kúwait hafði þá verið að skipuleggja æfingabúðir í Króatíu og Slóveníu auk þess sem möguleiki var á leikjum gegn Lúxemborg. Ekkert hafði þó verið fest og Aron bar hugmyndina um Íslandsferðina undir sína menn.

„Mér líst vel á þetta og leikmönnunum líst vel á þetta, að koma til Íslands. Menn eru ánægðir með þessa niðurstöðu og voru tilbúnir að hækka kostnaðinn á æfingabúðunum með því að koma til Íslands. Ísland er að bjóða okkur í þessa tvo æfingaleiki sem er frábært fyrir okkur.“

Fyrstu verðlaunin í sextán ár

Aron hefur verið að byggja upp ungt lið hjá Kúwait og segir þróunina hafa verið góða. Liðið hafnaði í þriðja sæti á síðasta Asíumóti og vann þar með sín fyrstu verðlaun á stórmóti í sextán ár.

„Við vitum að þetta verða mjög erfiðir leikir en við erum á ákveðinni vegferð með okkar lið. Við erum með ungt lið, margir af mínum leikmönnum eru ungir og við erum að endurnýja liðið. Sú vegferð hefur gengið vel.“

Aron telur leikina gegn Íslandi geta reynst Kúwait sérstaklega dýrmætir enda bíður liðsins afar krefjandi riðill á HM.

„Það verður krefjandi fyrir okkur að mæta þeim hraða bolta sem íslenska liðið spilar fyrir HM, þar sem við mætum Frökkum, Argentínu og Brasilíu. Að því leyti verða þetta erfiðir en mjög góðir undirbúningsleikir fyrir okkur og góð áskorun fyrir strákana.“

Beint frá Íslandi til Þýskalands

Kúwait verður lengi hér á landi fyrir leikina tvo. Liðið kemur 28. desember og heldur síðan til Þýskalands 12. janúar. Aron er jafnframt ánægður með að geta komið HSÍ til aðstoðar eftir að Egyptaland hætti við fyrirhugaða Íslandsferð.

„Við förum beint til Stuttgart en fyrsti leikur okkar á HM fer fram 14. janúar gegn Frakklandi.“

„Það er gott að geta aðstoðað HSÍ og landsliðið við að leysa það vandamál sem kom upp eftir að Egyptarnir hættu við að koma. Það er mikilvægt fyrir íslenska liðið að fá tvo landsleiki á heimavelli í aðdraganda HM.“

Aron vonast til þess að íslenskir handboltaáhugamenn fjölmenni á leikina tvo í byrjun janúar.

„Það er langt síðan landsliðið spilaði síðustu undirbúningsleiki sína fyrir stórmót á heimavelli. Þetta er spennandi verkefni og vonandi verður góð stemning í Laugardalshöllinni í janúar.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top