
Einn leikur var á dagskrá í dag er 4.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar rúllaði, leikurinn fór fram á heimavelli Kiel í Wunderino Arena en Hannover Burgdorf komu í heimsókn. Kiel byrjaði leikinn ekki vel og Hannover komst strax í 0–2. Kiel náði þó að jafna í 3–3 og eftir það var leikurinn nokkuð jafn. Hannover var sterkari um miðjan fyrri hálfleik og náði þriggja marka forskoti, 8–11. Kiel minnkaði muninn undir lok hálfleiksins en Hannover fór með 11–12 forystu inn til búningsklefa. Kiel kom mun sterkari inn í seinni hálfleikinn og jafnaði fljótlega í 13–13. Heimamenn tóku síðan forystuna og komust í 18–15, en Hannover gafst ekki upp og minnkaði aftur í 19–18. Eftir það fór Kiel smám saman að ná betri stjórn á leiknum. Þegar um tíu mínútur voru eftir var staðan 24–21 og Kiel hélt Hannover í hæfilegri fjarlægð það sem eftir lifði leiks. Hannover reyndi að minnka muninn á lokamínútunum en Kiel hélt forystunni og tryggði sér að lokum 29–26 sigur. Atkvæðamesti leikmaður leiksins var Harald Reinkind í liði Kiel með 7 mörk og eina stoðsendingu. Sigvaldi Guðjónsson leikmaður Íslenska landsliðsins og Hannover er enn frá vegna meiðsla er hann er að glíma við taugavandamál í baki. Úrslit dagsins: THW Kiel - Hannover 29-26

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.