Í dag mættust Víkingur 2 og Grótta í Virkinu (Safamýri) í Grill 66 deild karla. Gróttu menn gáfu fljótlega tóninn og voru mun betri aðilinn í fyrri hálfleik. Náðu þeir mest 6 marka forskoti. Hálfleikstölur voru 11-15 fyrir gestina frá Seltjarnarnesi. Eftir 15 mínútna leik í seinni hálfleik var staðan orðin orðin 15-25 fyrir gestina. Þeir slökuðu ekkert á og unnu leikinn með 14 marka mun. 19-33 urðu lokatölur. Grótta byrjar tímabilið vel og það er ljóst á spilamennsku þeirra að þeir eru til alls líklegir í deildinni í vetur. Sæþór Atlason var markahæstur hjá Gróttu með 8 mörk og Hannes Pétur Hauksson varði 17 skot. Hjá Víking 2 var Benedikt Emil Aðalsteinsson markahæstur með 5 mörk og Hilmar Ingason varði 16 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.