Fjölnismenn fóru tómhentir úr Úlfarsárdalnum
Egill Bjarni Friðjónsson

Fram 2 og Fjölnir mættust í dag í Úlfarsárdalnum í Grill 66 deild karla.

Fjölnismenn voru mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og náðu þeir mest 6 marka forskoti. En Framarar áttu frábæran endasprett í fyrri hálfleik og náðu að jafna leikinn rétt áður en flautað var til hálfleiks. 15-15 voru hálfleikstölur.

Í seinni hálfleik var lengi vel mikið jafnræði með liðunum en um miðbik hálfleiksins náðu Framarar að komast yfir. Var leikurinn mjög jafn en Framarar alltaf hálfu skrefi á undan. Fór það svo að Framarar sigruðu að lokum með eins marks mun. Lokatölur 31-30 í hörkuleik í Lambhagahöllinni.

Hjá Fram 2 var Jón Sigurður Bjarnason markahæstur með 6 mörk. Jóhann Ágústsson varði 13 skot.

Hjá Fjölni var Óli Fannar Pedersen markahæstur með 9 mörk. Garpur Druzin Gylfason varði 11 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top