Í dag mættust Víðir í Garði og Haukar 2 í Garði á Suðurnesjum í Grill 66 deild karla. Heimamenn í Víði í Garði voru mun ferskara liðið fyrstu 20 mínútur leiksins. Komust þeir m.a í 11-6 og höfðu fín tök á leiknum. Á 20 mínútu jöfnuðu Haukamenn í 12-12 og voru betri síðustu 10 mínútur fyrri hálfleiks. Hálfleikstölur 16-18. Í seinni hálfleik voru Haukamenn áfram betri en náðu ekki alveg að slíta Víðis menn frá sér. Voru þeir mikið 2-3 mörkum yfir lengi vel. Fór það svo að lokum að Haukar unnu 30-34. Sanngjarn sigur hjá þeim. Daníel Máni Sigurgeirsson átti frábæran leik fyrir Hauka 2 og setti hann 16 mörk. Ari Dignus og Birnir vörðu 15 skot samtals. Marek Lesansky skoraði 7 mörk fyrir Víði. Jan Widera og Sigurjón Sveinsson vörðu samtals 15 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.