Alfa Brá með fullt hús stiga – Blær hafði betur gegn Adam
Instagram

Alfa Brá Oddsdóttir Hagalin og liðsfélagar hennar í Thüringer HC héldu sigurgöngu sinni áfram í þýsku úrvalsdeildinni í dag á meðan nokkrir Íslendingar voru í eldlínunni í B-deildinni.

Thüringer vann 37-32 heimasigur á Frisch Auf Göppingen eftir að hafa verið 18-15 yfir í hálfleik. Liðið hefur þar með unnið alla þrjá leiki sína á tímabilinu og er með fullt hús stiga.

Alfa Brá var í leikmannahópi Thüringer en komst ekki á blað. Jana Scheib var markahæst í liði Thüringer með sjö mörk.

Blær Hinriksson og félagar í SC DHfK Leipzig unnu dramatískan 33-32 sigur á VfL Lübeck-Schwartau í þýsku B-deildinni. Blær skoraði þrjú mörk í leiknum, þar af eitt úr vítakasti, og Leipzig hefur þar með unnið alla þrjá leiki sína eftir fallið úr efstu deildinni.

Adam Thorstensen var í marki Lübeck-Schwartau í leiknum og varði fjögur skot, þar af eitt vítakast. Adam gekk til liðs við félagið í sumar og hafði komið sterkur inn í 42-31 sigri á Dormagen í síðustu umferð þegar hann varði tíu skot.

Elmar Erlingsson og liðsfélagar hans í HSG Nordhorn-Lingen máttu hins vegar sætta sig við sitt fyrsta tap á tímabilinu þegar liðið tapaði 31-28 á útivelli gegn TV Hüttenberg. Elmar skoraði þrjú mörk í leiknum, þar af eitt úr vítakasti. Nordhorn-Lingen hafði unnið fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu og er því með fjögur stig eftir þrjár umferðir.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top