Lilja stýrði sóknarleik Zwickau og gaf níu stoðsendingar
Sævar Jónasson

Lilja Ágústsdóttir var í stóru hlutverki hjá BSV Sachsen Zwickau sem tapaði 29-25 gegn Metzingen í þýsku Bundesligunni í gær.

Lilja lék á miðjunni allan leikinn og stýrði sóknarleik Zwickau, sem lék sjö gegn sex nánast allan leikinn. Hún skoraði eitt mark sjálf en skapaði mikið fyrir samherja sína og gaf alls níu stoðsendingar.

Zwickau þurfti að glíma við töluverð skakkaföll fyrir leikinn en þrír leikmenn úr byrjunarliði liðsins voru frá vegna meiðsla.

Þrátt fyrir það hélt Zwickau sér inni í leiknum en Metzingen reyndist sterkara þegar upp var staðið og vann fjögurra marka sigur, 29-25.

Zwickau er með eitt stig að loknum þremur leikjum í deildinni en liðið mætir Íslendingaliði, Blomberg-Lippe á miðvikudaginn á útivelli.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top