Alfreð Gísla tjáir sig um Golla
Sina Schuldt / AFP

Alfreð Gíslason, þjálfari þýska landsliðsins segist ekki merkja neina breytingu á fyrirliðanum Johannes Golla þrátt fyrir umræðuna um ósk hans að snúa aftur til Flensburg frá Melsungen.

Golla hefur opinberlega rætt um andlegt álag í tengslum við stöðu sína en Alfreð segir línumanninn njóta þess að vera með landsliðinu. Alfreð ræddi við fjölmiðla um málið í aðdraganda leik Þýskalands gegn Belgíu í undankeppni EM. Handball-world greinir frá.

„Hann er alveg jafn ánægður og allir hinir með að vera hérna. Hann nýtur tímans með okkur,“ sagði Alfreð. Landsliðsþjálfarinn sparaði ekki stóru orðin þegar hann lýsti fyrirliða sínum og hét honum fullum stuðningi.

„Ef við getum hjálpað Golla á einhvern hátt munum við alltaf gera það. Við stöndum heilshugar með honum.“

Alfreð lýsti Golla sem frábærum fyrirliða og einstökum karakter sem hefði staðið sig frábærlega undanfarin ár.

„Ég vona bara það besta fyrir hann og að framhaldið verði gott hjá honum.“

Ósk Golla um að snúa aftur til Flensburg hefur jafnframt vakið umræðu um félagaskiptareglur í handboltanum og hversu langt fram í tímann leikmenn semja við ný félög. Tilkynnt var um komu hans til Melsungen í desember 2024 en félagaskiptin gengu í gegn sumarið 2026.

Stefan Kretzschmar hefur gagnrýnt þessa þróun harðlega og Mathias Gidsel kallað eftir breytingum. Alfreð vildi hins vegar lítið blanda sér í þá umræðu og svaraði hlæjandi þegar hann var spurður út í málið.

„Ég held að ég hafi verið varaður við því að fara of djúpt í þessa spurningu. Ég blanda mér í raun ekkert í þetta sem landsliðsþjálfari.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top