Þýska stórliðið Magdeburg er með ellefu leikmenn sína í landsliðsverkefni þessa vikuna en þrír þeirra eru íslenskir landsliðsmenn. Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson eru allir komnir til móts við íslenska landsliðið sem hefur leik í undankeppni Evrópumótsins 2028 í kvöld. Magdeburg greindi frá því á heimasíðu sinni að alls ellefu leikmenn félagsins væru í landsliðsverkefnum þessa vikuna. Það er meira en helmingur leikmannahóps þýsku meistaranna. Auk íslensku leikmannanna þriggja eru fjórir Svíar í landsliðsverkefnum, þeir Felix Claar, Albin Lagergren, Oscar Bergendahl og Daniel Pettersson. Króatísku markverðirnir Matej Mandić og Dominik Kuzmanović eru einnig í landsliðshópi Króatíu sem mætir Litháen í kvöld og Finnlandi á laugardaginn. Þá eru Daninn Magnus Saugstrup og Spánverjinn Antonio Serradilla einnig í landsliðsverkefnum. Þeir mætast með landsliðum sínum í Evrópubikarnum í kvöld en báðar þjóðir hafa þegar tryggt sér sæti á EM 2028. Fjarvera leikmannanna ellefu hefur sett strik í reikninginn hjá Bennet Wiegert, þjálfara Magdeburg, sem þarf að nýta leikmenn úr varaliði og yngri flokkum félagsins til að halda uppi æfingum á meðan landsleikjahléið stendur yfir. Magdeburg hefur verið á mikilli siglingu að undanförnu og unnið sjö keppnisleiki í röð. Liðið vann meðal annars Lemgo á útivelli um síðustu helgi, 31–28. Næsti keppnisleikur Magdeburg verður gegn Hamburg í þýsku bikarkeppninni miðvikudaginn 11. nóvember. Íslendingarnir þrír verða hins vegar í eldlínunni í kvöld þegar Ísland tekur á móti Úkraínu í Laugardalshöll klukkan 19:30. Íslenska liðið mætir síðan Eistlandi á útivelli á sunnudaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.