Safnað fyrir börnum í Úkraínu á leiknum í kvöld
Anna Moneymaker / GETTY IMAGES

Íslenska karla landsliðið tekur á móti Úkraínu í Laugardalshöll í kvöld klukkan 19:30 í fyrsta leik sínum í undankeppni Evrópumótsins 2028. Í tilefni leiksins hefur Handknattleikssamband Íslands tekið höndum saman við UNICEF á Íslandi og verður staðið fyrir neyðarsöfnun fyrir börn í Úkraínu.

Undir yfirskriftinni „Áfram Ísland – styðjum Úkraínu“ eru landsmenn hvattir til að leggja söfnuninni lið og sýna börnum í Úkraínu stuðning á sama tíma og íslenska landsliðið hefur leik í undankeppni EM.

Stríðið í Úkraínu hefur haft gríðarleg áhrif á líf barna í landinu og með söfnuninni vilja HSÍ og UNICEF leggja sitt af mörkum til að styðja þau börn sem þurfa á aðstoð að halda.

Hægt verður að styrkja söfnunina með þrennum hætti:

  • Með því að fara inn á vefsíðuna unicef.is/ukraina.
  • Með því að hringja í 907-3013 og gefa 3.000 krónur.
  • Með því að greiða með posa á staðnum í Laugardalshöll í kvöld.

Uppselt er á leik Íslands og Úkraínu í kvöld og því ljóst að fjölmenni verður í Laugardalshöll þegar íslenska liðið hefur vegferð sína í átt að Evrópumótinu 2028.

Yfirskrift átaksins er „Hjartað í boltanum“ og eru áhorfendur hvattir til að taka þátt í söfnuninni og sýna samstöðu með börnum í Úkraínu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top