Hafnaði beiðni Dujshebaev að snúa aftur í franska landsliðið
IHF

Talant Dujshebaev, landsliðsþjálfari Frakklands reyndi á dögunum að fá Timothey N'Guessan, leikmann Barcelona, til að snúa aftur í franska landsliðið. N'Guessan hafnaði hins vegar beiðni landsliðsþjálfarans og ætlar að standa við ákvörðun sína um að hafa lagt landsliðsskóna á hilluna.

Þetta staðfesti Dujshebaev á blaðamannafundi franska landsliðsins en franska landsliðið undirbýr sig nú fyrir fyrstu leiki sína í undankeppni EM 2028.

N'Guessan, sem er 34 ára gamall, hefur verið í frábæru formi með Barcelona á tímabilinu og vildi Dujshebaev fá hinn reynslumikla leikmann aftur inn í franska landsliðið.

„Hann er í frábæru formi, það vita allir. En ég virði ákvörðun hans og sætti mig við hana,“ sagði Dujshebaev á blaðamannafundinum.

Hætti eftir að hafa verið skilinn eftir heima

N'Guessan tilkynnti í október árið 2024 að hann hefði ákveðið að hætta að leika með franska landsliðinu. Ákvörðunin kom nokkrum mánuðum eftir að Guillaume Gille, þáverandi landsliðsþjálfari Frakklands, hafði ekki valið hann í hópinn fyrir Ólympíuleikana í París.

N'Guessan á að baki 115 landsleiki fyrir Frakkland og hefur unnið alla stærstu titla sem í boði eru með landsliðinu. Hann varð heimsmeistari með Frökkum árið 2017, Ólympíumeistari í Tókýó árið 2021 og Evrópumeistari árið 2024.

Frakkland mætir Rúmeníu á morgun í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2028 áður en liðið heimsækir Lettland á sunnudaginn.

Dujshebaev tók við franska landsliðinu fyrr á þessu ári og hefur nú hafið undirbúning fyrir sitt fyrsta stórmót með liðinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top