Magdeburg tapaði síðast heima í mars 2025
SVEN SIMON /AFP

Þýsku meistararnir í SC Magdeburg töpuðu sínum fyrsta leik á tímabilinu gegn MT Melsungen í síðustu umferð. Það er hins vegar orðið ansi langt síðan Bennet Wiegert og lærisveinar hans þurftu síðast að sætta sig við tap á heimavelli í Bundesligunni.

Magdeburg tapaði 37-34 á útivelli gegn MT Melsungen í síðustu umferð og var það fyrsta tap liðsins á tímabilinu.

Heimavöllurinn í Getec Arena hefur hins vegar reynst allt annað en auðveldur viðureignar fyrir gestaliðin.

Magdeburg tapaði ekki einum einasta heimaleik í Bundesligunni á öllu síðasta tímabili. Liðið vann alla heimaleiki sína nema einn, þegar THW Kiel náði 26-26 jafntefli rétt fyrir jól.

Fara þarf aftur til 21. mars 2025 til að finna síðasta heimaleik Magdeburg í Bundesligunni sem endaði með tapi.

Þá kom Füchse Berlin í heimsókn og vann 33-30 sigur á Magdeburg. Síðan þá hefur lið Bennet Wiegert leikið 26 heimaleiki í röð í Bundesligunni án þess að tapa. Meira en eitt og hálft ár er því liðið frá því að Magdeburg tapaði síðast deildarleik fyrir framan eigin stuðningsmenn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top