Þýska handknattleiksfélagið GWD Minden hefur ákveðið að láta Aaron Ziercke hætta störfum sem þjálfari liðsins eftir slaka byrjun á tímabilinu. Félagið greindi frá ákvörðuninni í dag en þar kemur fram að árangurinn í upphafi tímabilsins hafi orðið til þess að stjórnendur félagsins ákváðu að binda enda á samstarfið við Ziercke. „Við þökkum Aaron fyrir framlag hans, samstarfið og tímann hjá GWD Minden. Við óskum honum alls hins besta í framtíðinni,“ segir meðal annars í tilkynningu félagsins. ÍBV tilkynnti tíu mínútum áður en Minden tilkynnti uppsögn Ziercke að Erlingur Richardsson væri hættur með ÍBV og hann væri að taka við liði Minden. Ziercke tók við þjálfun Minden á nýjan leik árið 2024 en hann hafði áður stýrt liðinu á árunum 2014 til 2016. Eftir fimm umferðir er GWD Minden í 13. sæti þýsku B-deildarinnar með þrjú stig, eftir einn sigur, eitt jafntefli og þrjú töp. Liðið tapaði síðast 33–32 fyrir Hüttenberg.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.