Stærsta sala í sögu Álaborgar – Knorr seldur fyrir stórfé
PSG

Franska stórveldið Paris Saint-Germain þarf að greiða um 250 þúsund evrur fyrir Juri Knorr þegar þýska stórstjarnan yfirgefur Álaborg og heldur til Parísar sumarið 2027.

Það samsvarar um 36 milljónum íslenskra króna miðað við núverandi gengi.

Knorr hefur samið við PSG til sumarsins 2030 en hann var samningsbundinn Álaborg til ársins 2028. Franska félagið þurfti því að kaupa síðasta árið af samningi hins 26 ára gamla leikstjórnanda.

Samkvæmt umfjöllun Sport Bild nemur kaupverðið um 250 þúsund evrum. Forráðamenn Álaborgar hafa þegar lýst félagaskiptunum sem stærstu sölu í sögu félagsins og ljóst er að danska félagið fær myndarlega fjárhæð fyrir að hleypa Knorr frá félaginu ári áður en samningur hans rennur út.

Knorr gekk til liðs við Álaborgar frá Rhein-Neckar Löwen sumarið 2025 en dvöl hans í Danmörku verður því aðeins tvö ár áður en hann heldur til Frakklands. PSG virðist ætla að láta verulega að sér kveða á leikmannamarkaðnum og styrkja liðið með það að markmiði að berjast við allra sterkustu lið Evrópu.

Í París hittir Knorr meðal annars fyrir þýska landsliðsfélaga sinn Renars Uscins.

Álaborg þarf á sama tíma að fylla stórt skarð í leikmannahópnum. Færeyska stórstjarnan Elias Ellefsen á Skipagøtu er talinn vera á leið til félagsins og er búist við að Aalborg staðfesti komu hans á næstu dögum. Hann yrði þar með arftaki Knorr í leikstjórnandastöðunni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top