Styttist í Jóhann Birgi – Lengra í Wisman og Styrmi
Egill Bjarni Friðjónsson

HK þarf áfram að glíma við töluverð meiðsli í leikmannahópnum en Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari liðsins, gaf Handkastinu stöðuna á þremur leikmönnum sem hafa verið frá vegna meiðsla.

Andrew Wisman er enn að jafna sig eftir fótbrot og verður ekki klár í slaginn á næstu vikum. Vonir standa til að hann geti snúið aftur í nóvember. Daninn sem gekk í raðir HK í sumar hlaut svokallað Jones-brot, beinbrot á utanverðri rist. Hann gekk undir aðgerð vegna meiðslanna.

„Andrew er í sínu ferli vegna fótbrotsins og hann kemur ekkert til baka fyrr en í nóvember, vonandi,“ sagði Halldór Jóhann í samtali við Handkastið.

Styrmir Hugi Sigurðarson er sömuleiðis frá vegna meiðsla en hann glímir við beinmar í hné. Erfitt er að tímasetja nákvæmlega hvenær hann verður leikfær á ný.

„Styrmir er með beinmar í hnénu sem mun taka einhvern tíma. Beinið er að verða gróið og því erfitt að segja til um tímasetningu á endurkomu en líklega verður það á svipuðum tíma og hjá Andrew.“

Betri tíðindi eru af Jóhanni Birgi, sem er farinn að nálgast endurkomu. Vonast er til þess að hann fái leyfi til að hefja leik á ný innan tveggja vikna. Jóhann Birgir nefbrotnaði í sama leik og Styrmir Hugi og Andrew meiddist á Hafnarfjarðarmótinu í ágúst.

HK vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í síðustu viku þegar liðið lagði ÍBV með einu marki í dramatískum leik í Vestmannaeyjum. Færeyingurinn Trúgvi Hávardsson tryggði HK sigurinn með eftirminnilegu sigurmarki frá miðju.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top