
Danska stórliðið Álaborg hefur staðfest komu færeysku stórstjörnunnar Elias Ellefsen á Skipagøtu frá THW Kiel sumarið 2027. Skipagøtu kemur til Álaborgar án greiðslu þar sem samningur hans við Kiel rennur út sumarið 2027. Færeyingurinn er 24 ára gamall og verður ætlað stórt hlutverk í leikstjórnandastöðunni hjá danska liðinu. Tilkynningin kemur í kjölfar þess að staðfest var að þýski landsliðsmaðurinn Juri Knorr yfirgefi félagið sumarið 2027 og gengur til liðs við Paris Saint-Germain. Elias Ellefsen á Skipagøtu hóf feril sinn með H71 í Færeyjum áður en hann gekk til liðs við IK Sävehof í Svíþjóð árið 2020. Þar vakti hann mikla athygli og þremur árum síðar gekk hann til liðs við þýska stórveldið THW Kiel. Færeyingurinn hefur síðan skipað sér í hóp áberandi leikstjórnenda í evrópskum handbolta. Hann var meðal annars valinn besti ungi leikmaður heims af Alþjóða handknattleikssambandinu, IHF, árið 2024. Elias Ellefsen á Skipagøtu varð þýskur bikarmeistari með Kiel árið 2025. Hann átti frábært tímabil með Kiel 2025/26 þar sem hann skoraði 150 mörk í 22 deildarleikjum og var markahæsti leikmaður liðsins í Bundesligunni. Að tímabilinu loknu var hann jafnframt valinn besti leikstjórnandi deildarinnar og í lið ársins. Álaborg hefur undanfarin ár skipað sér í hóp allra sterkustu liða Evrópu og félagið hefur sett stefnuna á að vinna Meistaradeild Evrópu. Koma Skipagøtu er enn ein yfirlýsing um þann metnað.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.